Kvikmynd
Fuglaborgin (2012)
Zambezia
83 mín
- Comedy
- Animation
- Adventure
- Family
- Leikstjóri
- Wayne Thornley
- Útgáfudagur
- 5. júní 2012
Söguþráður
Myndin gerist í hinni víðlendu Afríku, nánar tiltekið við hina fögru og tilkomumiklu Viktoríufossa þar sem fuglar hafa stofnað sína eigin borg, fuglaborgina Zambezíu. Við kynnumst hér fálkanum Kai sem heldur af stað í leit að fuglaborginni þar sem hann hefur heyrt að gott sé að vera. Kai er ungur og óreyndur og veit ekki mikið um lífið og tilveruna enn sem komið er. Á móti kemur að hann er bæði hughraustur, áræðinn og svo sannarlega tilbúinn til að læra allt það sem fuglar þurfa að læra til að komast af, ekki síst fálkar eins og hann. Og Kai er fljótur að falla inn í hópinn sem býr í Zambezíu enda hittir hann strax marga litríka og sniðuga fugla sem eru alveg til í að kenna honum hitt og þetta. En fuglarnir í Zambezíu eiga sér líka óvini sem ásælast egg þeirra og stundum þá sjálfa. Við slík óargadýr þarf að berjast og þá er betra að sýna hugkvæmni, enda eru óvinirnir bæði stórir og sterkir. Og í þeim átökum á Kai eftir að sýna að hann er engin liðleskja.
Leikarar
- Samuel L. Jackson
- Abigail Breslin
- Leonard Nimoy
- Jeremy Suarez
- Jeff Goldblum
- Jenifer Lewis
- Noureen DeWulf
- Richard E. Grant
- Jamal Mixon
- David Shaughnessy
- Corey Burton
- Tress MacNeille
Svipuð verk
- Skrímslafjölskyldan 2 (2021)
- The Ice Age Adventures of Buck Wild (2022)
- Cars Toon Mater's Tall Tales (2008)
- Flugvélar 2: Björgunarsveitin (2014)
- Storkar (2016)
- Skrímslafjölskyldan (2017)
- Robin Robin (2021)
- Trollhunters: Rise of the Titans (2021)
- Dory's Reef Cam (2020)
- Ríó 2: Einvígið í Amazon (2014)
- Heimskautahundar (2019)
- Kjúklingaflótti (2000)