Kvikmynd

Kassatröllin (2014)

The Boxtrolls

97 mín

Leikstjóri
Graham Annable, Anthony Stacchi
Útgáfudagur
10. september 2014

Söguþráður

Kassatröllin segir frá ungum dreng, Eggja, eins og hann er kallaður, sem alist hefur upp í holræsum bæjarins Ostabrúar í góðri umsjá hinna sérkennilegu kassatrölla. Kassatröllin eru frekar illa liðin af hinum mannlegu íbúum Ostabrúar enda koma þau upp úr holræsunum á næturnar til að ná sér í mat og reyndar hvað eina sem á vegi þeirra verður, og geta þá um leið hrætt líftóruna úr þeim íbúum bæjarins sem eru svo óheppnir að hitta þau. Samt eru kassatröllin eiginlega alveg meinlaus og í raun sjálf alveg skíthrædd við fólk. Vandamál kassatröllanna verða hins vegar alvarleg þegar náungi einn sem þolir ekki kassatröll, finnur þeim allt til foráttu og dreifir um þau ósönnum og ljótum sögum, mætir á svæðið í sérhannaðri útrýmingarvél sem er sérstaklega gerð til að veiða og eyða kassatröllum hvar sem til þeirra næst. Það kemur auðvitað í hlut Eggja að bregðast við þessari vá og finna leið til að stöðva bæði útrýmingarvélina og stjórnanda hennar áður en það er orðið of seint.

Leikarar

Svipuð verk

SPORTS IPTV
Pick a channel to start watching
No channel playing
—
Stream Settings

⚽ Futbol

⚽ Live Matches
⭐ My Teams
🔍 Search Team
🔔 Bildirimler
—
LIVE
⚽ Live Scores
—
Back
Ana Sayfa
Favorites
Select Channel