Kvikmynd
Lóraxinn (2012)
The Lorax
86 mín
- Animation
- Family
- Leikstjóri
- Chris Renaud
- Útgáfudagur
- 1. mars 2012
Söguþráður
Ted býr í bænum Thneedville þar sem nánast allt er gert úr plasti í öllum regnbogans litum og hvergi er að finna stingandi strá. Ted er afar skotinn í hinni blíðlyndu Audrey og vill allt gera til að vinna hjarta hennar. Hann bíður því ekki boðanna þegar Audrey lætur í ljós þá ósk sína að fá að sjá og snerta alvörutré. Vandamálið er að enginn má yfirgefa Thneedville og halda út í hina stóru veröld án leyfis frá yfirvaldinu. Og það leyfi fær enginn. Ted ákveður samt að fara í skjóli nætur og taka afleiðingunum seinna. Leit hans að trénu berst um víðan völl og hann bæði hittir og sér margt skrítið á ferð sinni, ekkert þó skrítnara en trjámanninn Once-ler sem gegn greiðslu er tilbúinn að segja honum söguna af því þegar öll tré og allur gróður hvarf af yfirborði jarðar. Í gegnum hina stórmerkilegu sögu Once-ler uppgötvar Ted ekki bara af hverju öll trén hurfu heldur lærir hann líka allt um uppruna Thneedville og af hverju allt þar er gert úr plasti.
Leikarar
- Danny DeVito
- Ed Helms
- Zac Efron
- Rob Riggle
- Taylor Swift
- Jenny Slate
- Betty White
- Nasim Pedrad
- Joel Swetow
- Michael Beattie
- Elmarie Wendel
- Dave B. Mitchell