Kvikmynd
Smáfótur (2018)
Smallfoot
96 mín
- Family
- Comedy
- Adventure
- Animation
- Fantasy
- Leikstjóri
- Karey Kirkpatrick
- Útgáfudagur
- 20. september 2018
Söguþráður
Myndin fjallar um samfélag snjómanna hátt uppi í snæviþöktum fjöllum sem vita ekki að til séu siðuð samfélög fyrir utan þeirra eigið. Sögur hafa vissulega sprottið upp öðru hverju af smáskrímslum sem hafa komið röltandi neðan frá og upp á tindinn en öllum slíkum sögum hefur verið vísað frá sem hjátrú í besta falli og bulli og vitleysu í því versta. Það kemur því heldur betur fát á einn ungan snjómann, Mígo, þegar hann rekst einmitt á svona smáskrímsli í eigin persónu sem því miður sleppur þó úr greipum hans. Mígo reynir að segja hinum snjómönnunum frá þessu en uppsker bara hæðni og hlátur eins og hann sé sjálfur genginn af göflunum. Við það getur Mígo ekki sætt sig, því hann veit hvað hann sá, og ákveður að halda einn síns liðs niður fjallið og finna hvar smáskrímslin halda sig svo hann geti sannað sitt mál í eitt skipti fyrir öll.
Leikarar
- Channing Tatum
- James Corden
- Zendaya
- Common
- LeBron James
- Danny DeVito
- Gina Rodriguez
- Yara Shahidi
- Ely Henry
- Jimmy Tatro
- Patricia Heaton
- Justin Roiland