Kvikmynd
Hneturánið (2014)
The Nut Job
85 mín
- Animation
- Comedy
- Family
- Adventure
- Leikstjóri
- Peter Lepeniotis
- Útgáfudagur
- 17. janúar 2014
Söguþráður
Í myndinni er sagt frá geðstirðum íkorna, Surly, sem búið er að reka úr almenningsgarði af því hann er svo fúllyndur og leiðinlegur. Til að lifa veturinn af þá þurfa hann og aðrir sem gerðir hafa verið brottrækir úr garðinum, að fremja hættulegt rán, en þeir hyggjast ræna Maury´s hnetubúðina. Íkorninn Surlí er afskaplega hugmyndaríkur og uppátækjasamur í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur, en það snýst flest um að ná sér í fleiri hnetur. Í einni bíræfinni aðgerðinni verður hins vegar slys með þeim afleiðingum að hnetutré félaga hans í garðinum eyðileggst og stefnir vetrarafkomunni í voða. Til að bæta fyrir brot sitt byrjar Surlí ásamt nokkrum misgáfuðum félögum sínum að leggja á ráðin um áhættusamt hneturán sem á eftir að láta öll önnur hneturán blikna í samanburðinum. Það sem þeir félagar vita hins vegar ekki er að á sama stað, á sama tíma, eru nokkrir mannlegir þjófar líka að gera sig klára í innbrot og er meinilla við að láta trufla sig við þá iðju.
Leikarar
- Will Arnett
- Brendan Fraser
- Liam Neeson
- Katherine Heigl
- Stephen Lang
- Maya Rudolph
- Jeff Dunham
- Gabriel Iglesias
- Sarah Gadon
- James Rankin
- Scott Yaphe
- Joe Pingue
Svipuð verk
- The Nut Job 2: Nutty by Nature (2017)
- Yfir limgerðið (2006)
- Trouble (2019)
- Saving Bikini Bottom: The Sandy Cheeks Movie (2024)
- Bangsímon (2011)
- Alvin og Íkornarnir: Ævintýrið mikla (2015)
- Stígvélaði kötturinn (2011)
- Hundalíf 2: Depill í London (2003)
- Winnie the Pooh: Springtime with Roo (2004)
- Mörgæsirnar frá Madagaskar (2014)
- Flummurnar (2021)
- The Twits (2025)