Kvikmynd

Yfir limgerðið (2006)

Over the Hedge

83 mín

Leikstjóri
Karey Kirkpatrick, Tim Johnson
Útgáfudagur
17. maí 2006

Söguþráður

Þvottabjörninn Rúni reynir að stela ruslmat og nammi frá birninum Víglundi en tekst ekki betur til en svo að maturinn glatast og Víglundur gómar hann. Þá verður Rúni að lofa nokkru ómögulegu, að útvega allan matinn á einni viku. Á sama tíma breytist líf saklausra skógardýra til muna þegar heilu hverfin hafa risið í kringum skóginn þeirra meðan þau lágu í vetrardvala. Í stað trjáa og berjarunna standa nú steypt hús. Dýrin vita ekkert um mennina og taugaveiklaði leiðtoginn þeirra, skjaldbakan Viddi, læðist inn í garðinn við eitt húsið og upplifir hryllinginn: Vatnsúðara, grilláhöld, jeppa og fjallahjól. En Rúni er líka mættur í hverfið. Hann veit að aðeins þar getur hann fundið nógu mikið ruslfæði til að þóknast birninum. Viddi snýr aftur í skóginn og lofar því að fara aldrei framar yfir gerðið en Rúni er ekki á sama máli. Hann veit að hann getur fengið hin dýrin til að hjálpa sér við að safna matnum handa Víglundi.

Leikarar

Svipuð verk

SPORTS IPTV
Pick a channel to start watching
No channel playing
—
Stream Settings

⚽ Futbol

⚽ Live Matches
⭐ My Teams
🔍 Search Team
🔔 Bildirimler
—
LIVE
⚽ Live Scores
—
Back
Ana Sayfa
Favorites
Select Channel